Algengar spurningar
Get ég alltaf skipt um fjarskiptafyrirtæki?
Já, uppsagnarfrestur hjá fyrirtækjunum er yfirleitt einn mánuður og miðast oft við næstu mánaðarmót.
Er mikið mál að skipta um fjarskiptafyrirtæki?
Nei, fyrirtækið sem þú pantar hjá sér um uppsögn hjá núverandi félagi. Þú ert síðan látinn vita af færsludagsetningu og passað er upp á að þjónustan skerðist ekki við skiptin.
Ef þú ert að leigja nýjan router þarftu að sækja hann. Þú skilar síðan gamla routernum eftir að nýja tengingin er komin í gagnið.
Ef þú ert að flytja farsíma þarftu að sækja sim kort. Ef þú pantaðir rafrænt sim kort færðu það sent beint í farsímann þinn.
Ég er með sjónvarp hjá Símanum, Sýn eða Nova, missi ég það ef ég skipti?
Nei, þú getur keypt sjónvarp og notað það á heimaneti frá öðru félagi. Sjónvarpið gæti hins vegar verið dýrara ef það er ekki inni í pakka lengur. Best er að kynna sér verð á sjónvarpi án þess að það sé hluti af pakka hér:
Leggðu síðan sjónvarpsverðið ofan á fjarskiptaverðið hjá félaginu sem þú ert að íhuga að skipta yfir í, þá færðu heildarverðið.
Hvað gerist ef ég leigi ekki router?
Þá þarftu að kaupa þinn eigin router. Hann fæst hjá fjarskiptafyrirtækjunum og í raftækjaverslunum.
Missi ég símanúmerið mitt ef ég skipti um fjarskiptafyrirtæki?
Nei, þú heldur sama númeri.